Lilja Mósesdóttir 

 

 

 

 

Forsíða

Erindi

Viðtöl

Greinar

Bækur

Menntun

Störf

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

                                                                        

Starfsferill

 

 

2008     

Hagfræðingur hjá Háskóla Íslands

Fræðistörf fjármögnuð með styrkjum frá ESB.

                             

 

2002-2007         

Prófessor við Háskólann á Bifröst frá febrúar 2003 til loka ársins 2007. Rannsóknir, stjórnun og kennsla á meistarastigi og BS stigi.

Námskeið kennd: þjóðhagfræði (BS), haglýsing (MA), evrópski efnahagssamruninn (MA). Leiðbeining BS og MA ritgerða.

                                           

Ýmis verkefni á mínum vegum:                  

              

2004-2007         

EC Expert Group on Gender, Social Inclusion and Employment (EGGSIE).

Sérfræðingahópurinn samanstóð af 25 sérfræðingum og 3 verkefnisstjórum. Hópurinn gerði úttektir fyrir framkvæmdastjórn ESB á sviði atvinnu-, jafnréttis- og félagsmála í aðildarlöndum Evrópska Efnahagssvæðisins. Úttektirnar voru notaðar við stefnumótunarvinnu innan sambandsins.

 

2004-2006         

På spåret av likalön – Equal Pay – Mælistikur á launajafnrétti Verkefnisstjórn var í mínum höndum. Verkefnið var unnið af 6 íslenskum sérfræðingum í nánu samstarfi við aðra norræna sérfræðinga. Markmið verkefnisins var að gera samanburð á launamun kynjanna, greina aðferðir við að „leiðrétta“ launamun kynjanna og meta árangur aðgerða sem ráðist hefur verið í til að vinna gegn launamun karla og kvenna á Norðurlöndum. Niðurstöður verkefnisins voru kynntar á fundi embættismanna hjá Norrænu ráðherranefndinni í Kaupmannahöfn. Verkefnið hlaut styrk frá Norrænu ráðherranefndinni að upphæð 700.000 Dkr.

 

2003-2005         

WELLKNOW: From welfare to knowfare. A European approach to employment and gender mainstreaming in the Knowledge Based Society. Verkefnið hlatu styrk úr 5 rannsóknarammaáætlun ESB og var verkefnisstjórn þess í mínum höndum. Verkefnisstjórnunin fól m.a. í sér stjórnsýslulega, faglega og fjárhagslega umsjón verkefnisins bæði hvað varðar framkvæmdastjórn ESB og samstarfsaðilana en alls tóku 7 stofnanir þátt í verkefninu og um 20 fræðimenn. Um 400 aðilar sóttu um styrk og var þetta verkefni eitt af 80 verkefnum sem fengu styrk en upphæð hans var 610.000 evrur (sjá hér).

 

 

2000-2002         

Háskólinn í Reykjvík

Dósent við viðskiptadeild. Kennsla, rannsóknir og stjórnun.

Námskeið kennd: rekstrarhagfræði og þjóðhagfræði. Leiðbeinandi BS ritgerða.

 

 

1999-2000         

Tækniháskólinn í Luleaa, Svíþjóð

Sérfræðingur við Social Sciences Education and Research Centre  og veitti m.a. sveitarstjórnum og vinnumiðlunum í Norrbotten ráðgjöf í atvinnu- og jafnréttismálum.

 

 

1997-1999                        

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins

Verkefnaráðinn sérfræðingur í sérfræðingahópnum

EC Experts on Gender and Work.

Sérfræðingahópurinn gerði úttektir fyrir framkvæmdastjórn ESB á sviði atvinnu- og jafnréttismála í aðildarlöndum Evrópska Efnahagssvæðisins. Úttektirnar voru notaðar við stefnumótunarvinnu innan sambandsins.

 

 

1995-1996                        

Félagsmálaráðuneyti grænlensku heimastjórnarinnar 

Verkefnaráðinn ráðgjafi atvinnu- og félagsmálaráðherra, Benedikte Thorsteinsson, í atvinnu, félags- og lífeyrissjóðsmálum. Gerði stutta úttekt og skrifaði ræðu fyrir ráðherra.

 

 

1992-1993         

Iðntæknistofnun Íslands

Ráðgjafi og námskeiðakennari.

Ég útbjó og kenndi námskeiðið Athafnakonur í atvinnurekstri í samvinnu við Hansínu B. Einarsdóttur. Námskeiðið var haldið í  Reykjavík, Keflavík, á Djúpavogi, Egilsstöðum, Siglufirði og á Ísafirði.                                         

 

 

1989-1991                        

Háskólinn á Akureyri

Lektor við rekstrardeild. Kennsla, rannsóknir og stjórnun.

Námskeið kennd: rekstrarhagfræði, íslensk haglýsing, fyrirtækið og þjóðfélagið, þjóðhagfræði o.fl. Auk þess hafði ég umsjón með kennslu í hagfræði og lokaverkefnum stúdenta.

 

 

1988-1989                        

Alþýðusamband Íslands ASÍ

Starf: Hagfræðingur

Starfssvið: kjarasamningar, þjónusta við aðildarfélög, nefndastörf og þátttaka í fjölmiðlaumræðu.

 

 

1985-1986                        

Verzlunarskóli Íslands, Reykjavík

Starf: Kennari

Kennslugreinar: rekstrarhagfræði og þjóðhagfræði

 

 

1978-1981                        

Hreppskrifstofa Eyrarsveitar, Grundarfirði

Sumarvinna: almenn skrifstofustörf

 

 

1975-1977                        

Hraðfrystihús Grundarfjarðar, Grundarfirði

Sumarvinna: Snyrting og gæðaeftirlit

 

 

 

 

Lilju í 2. sætið í Reykjavík